miðvikudagur, 29. apríl 2009

You are my sister...

Dagurinn í dag er yndislegur.. Það er heiðskýrt og veðrið er eins og það verður best á kosið! Kosningarnar búnar og niðurstöðurnar í samræmi við væntingar undirritaðar. Jöfnuður og almenn velferð er rosalega 2009 krakkar, Im telling you ;)
Ég er búin að vera mjög jákvæð uppá síðkastið þrátt fyrir svínaflensuvá og almenna kreppu. Held að það sé útskriftasýningu LHI að þakka sem opnuð var síðastliðin fimmtudag með prompi og prakt. Arkitektadeildin var laaaaaang flottust (ég er alveg hlutlaus ;) Þar voru þrír snillingar sem stóðu uppúr eða þau Tinna, Jónína og Hjalti. Vá hvað ég var stolt af þeim og útkoman svooo skemmtileg! Mæli með að fólk geri sér leið útá Kjarvalstaði fyrir 3.mai næstkomandi, en þá lýkur sýningunni.

Að lokum langar mig að benda á heimasíðu Betu syss, sem er líka úber talentet! En hún ætlar að flytja frá Hollandi, núna í sumar, á klakkann, með helle familiu, lætur sko engan helv! kreppu stoppa sig! Óþarfi en tek fram að allt á síðunni er © !.

www.volki.is

Og Hey meðan ég er að spotta út talenta þá langar mig líka að benda á heimasíðuna
pressan.is þar sem Guðrún Jóna Guðmundsdóttir, tískumógull, og bestfriend kemur með það heitasta í trendum framtíðarinnar í pistlaformi! Þess virði að fylgjast með :D

www.pressan.is

Sumar Hrabbs

þriðjudagur, 10. mars 2009

Hrafnhildur drekkur kalt kaffi og lætur sig dreyma á urbanoutfitters.com. 10:49 - Comment - Like Unlike

Fyndið að láta alla vita alltaf hvað maður er að gera nákvæmlega
þessa stundina - Er virkilega að pæla í Facebook afvötnun, fara bara út í sveit
og hlusta á þöginina og fara í störukeppni við snjóskafl. Það hlýtur að vera hreinsandi, allvega andlega.....

En annars er það af manni að frétta að ég er að fara til London í maí og vitandi það fær maður smá shopping-fiðring. Mig sárvantar t.d. leðurjakka -



Þessi fæst í Urban og á víst að kallast "veggie-friendly", persónulega finnst mér hræðilega takkí að vera í feikleðri en hey! Mér hafði aldrei dottið í hug að þessi væri ekki ekta



Hafið þetta PETA-PAKK!-!-!-!

Over end out

Hrabs

þriðjudagur, 3. mars 2009

Stundum þarf maður að láta minna sig á...

Af hverju maður vildi verða arkitekt?


Skuggvarp og yndi á Spáni

Skene Catling De Le Penä - Mjólkurbýli, fallega einfalt

Hof, Skagafjörður, Stúdío Granda - Hef komið inní þetta hús og útsýnið yfir á Drangey er fáranlegt, ég var dáleidd í þá 3 tíma sem ég var í húsinu.

Mjög skemmtilegt hús í Garðabæ, Kaldakur eftir Arnar Schram og félaga í Shift Architecture.

Lake Hurin FLoating House - Ég hef alltaf verið háð því að búa nálægt sjónum, fæ innilokunarkennd ef ég sé ekki hafið í einhverja daga...

föstudagur, 21. nóvember 2008

Er þetta sanngjarnt?



Nei ég bara spyr..
Kjellan er að skríða í 50 tugin, okey hún er 42 en kommon.. Þyngdaraflið
er búið að leika mig grárra heldur en þessa heitu mömmu..



Ég ætlar allavega að vera Cindy Crawford þegar ég verð 42....

sunnudagur, 9. nóvember 2008

Hvað í !

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Bítibúrsdama á FSA
Sundlaugavörður hjá sundlaug AK
Þjónn hjá Apótekinu Ak
Teiknari hjá AVH (Arkitektanemi)

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:

Tár úr steini
Sódóma Reykjavík
Litla lirfan ljóta
Eins og skepnan deyr

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Connecticut USA
Reykjavík ICE
Akureyri ICE
Reykjavík ICE

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Cuba
USA
Tyrkland
Svíþjóð

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Útsvar (hehe sad)
DEXTER
House
Family Guy

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:

www.mbl.is
www.facebook.com
www.visir.is
www.gmail.com

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á:

Humarinn hjá mömmu og pabba
Nautakjöt með hvítlauks smjöri og steiktu grænmeti
Sushi
Súkkulaðimús

8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft:

Viltu vinna millj.
Flugdrekahlauparinn
The plan
Mark Magazine

9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:

San Francisco
New York
Uppi sófa með teppi, latte og nýjasta MARK
Á stað með góðum púðursnjó og sól með brettið mitt.

10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka:
Þær sem hafa verið klukkaðar og eru ekki búnar að þessu:
Tinna
Jónína
Ragna
Rut Rúnars

Múhahah... Sorry

miðvikudagur, 15. október 2008

Anti-sweetness

Jæja elskurnar, það er að koma yfir mig bloggdeyfð þannig að ég er rembast núna við það
að reyna að vera skemmtileg.
Ég átti að vera á leiðinni til Bilbao á morgun að skoða Guggenheimsafnið hans Gehrys, en nei! Gjaldeyrinn er búinn og krónan orðin að aðhlátursefni í fjármálaheiminum. Ferðin flautuð af enda margir orðnir skelkaðir yfir þeirri tilhugsun að borga 1200 kall fyrir bjórinn sem eitt sinn kostaði 300 kall..
En það er ein chunky chick sem tekst að gleðja mig þessa dagana, vonandi gleður hún ykkur líka
Love Hrabbs

þriðjudagur, 16. september 2008

Do you recognize this person!



Persónulega minnir þetta andlit mig á mugshot úr villta vesturs mynd frá 1920 eða svona missing person mynd framan á mjólkurfernu. Og fyrir utan allt er þetta als ekki líkt MÉR!


En þetta er myndin sem birtist við hliðina á viðtalinu í Forum Aid, frekar mongo en líka pínu skemmitlegt. Hér fyrir neðan kemur viðtalið sem er náttúrulega ekkert mega viðtal þegar úti það er farið - Þetta var semsagt samantekt yfir nokkra útskriftanema á norðurlöndunum og lokaverkefnin þeirra.
Vona að þið séuð með rönken-sjón því annars verðið bara að trítla í næsta Eymundson og kíkja í blaðið - sem kostar 2900 kr. (MURDER á tímum kreppu)